Vilja að mótmælaskýrsla verði gerð opinber

Frá einum af fjölmörgum mótmælum við Alþingishúsið.
Frá einum af fjölmörgum mótmælum við Alþingishúsið. mbl.is/Golli

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna skorar á Ögmund Jónasson innanríkisráðherra að beita sér fyrir því að skýrsla um mótmælin á Austurvelli í janúar 2009 verði gerð opinber.

Þetta kemur fram í ályktun frá SUF.

„Það er skoðun ungra farmsóknarmanna að þingmenn sem grafa undan öryggi lögreglumanna, sem leggja líf sitt og limi í stór hættu við að sinna lögbundnum skyldum sínum, svo sem að upplýsa glæpi og vera “lífvarðartittir”, hafi ekkert erindi í þá vinnu að setja landslög sem lögreglumönnum ber að fylgja. Annað er svívirðing við Lögregluna, sem 82% landsmanna treysta samkvæmt könnunum,“ segir í ályktuninni.

Þá skorar stjórn Sambands ungra framsóknarmanna einnig á lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins að afhenda forseta Alþingis skýrslu Geirs Jóns Þórissonar til að tekin verði af öll tvímæli um það hátterni þingmanna sem þar er fjallað um.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert