Mikil hætta á utanverðum Tröllaskaga

Mikil hætta er á snjóflóðum á utanverðum Tröllaskaga.
Mikil hætta er á snjóflóðum á utanverðum Tröllaskaga. Mynd/Veðurstofa Íslands

Mikill hitastigull hefur verið á Vestfjörðum og Tröllaskaga og veik lög efst í snjóþekjunni. Veðurstofa Íslands varar við því að svo veik lög sem fyrir voru nærri yfirborði gætu hafa veikst enn meira. Nokkur snjófljóð hafa fallið og er hætta á snjóflóðum á utanverðum Tröllaskaga talin mikil.

Í dag er spáð NA-hríðarveðri og því líklegt að snjóflóðahætta aukist verulega ef vindfleki nær að byggjast upp í skafrenningi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert