Vestfirðir eitt best geymda leyndarmálið

Frá Látrabjargi.
Frá Látrabjargi. mbl.is/Árni Sæberg

Vestfirðir eru að mati fréttaritara bandaríska vikublaðsins Time eitt af 24 best geymdu leyndarmálum heimsins. Í grein blaðsins segir að Látrabjarg og Vatnasafn Roni Horn sé meðal þess sem dragi að.

Fréttaritarar þeir sem fjalla um ferðamál í Time voru beðnir að segja frá þeim stöðum sem þeir mæla með til að endurnæra huga, líkama og sál.

Einn þeirra mælir sérstaklega með Vestfjörðum Íslands. Sá bendir á að landslagið sé magnað og að fuglaskoðun í miðnætursólinni standi m.a. upp úr.

Grein Time.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert