„Nóg komið af óarðbærum framkvæmdum“

Úr safni.
Úr safni. mbl.is/ÞÖK

Íbúar í Skagafirði funduðu um Blöndulínu 3 á Mælifellsá 30. mars sl. Í ályktun sem fundurinn sendi frá sér er lagningu 220 kV loftlínu frá Blöndustöð til Akureyrar með tilheyrandi háspennumöstrum hafnað alfarið.

Fram kemur, að almenningsþörf búi ekki að baki áætlunum um lagningu Blöndulínu 3, þrátt fyrir áróður Landsnets um hið gagnstæða.  Framkvæmdin, verði af henni, muni spilla náttúru Íslands og draga úr möguleikum til uppbyggingar sjálfbærrar matvælaframleiðslu og ferðamennsku.

Þá segir, að skattgreiðendur muni bera kostnað og áhættu vegna framkvæmdarinnar, sem þjóni eingöngu hagsmunum stóriðju og sé fyrsta skrefið í hringtengingu stóriðjuvera, samkvæmt kerfisáætlun Landsnets. Með öllu sé óásættanlegt að skattgreiðendur niðurgreiði enn frekar raforkuflutninga til stóriðjufyrirtækja, sem þegar njóti óeðlilegra skattfríðinda hér á landi.

„Á Íslandi er nóg komið af óarðbærum framkvæmdum þar sem hagsmunum framtíðar er fórnað á altari stundarhagsmuna. Fundurinn fordæmir skammsýni þá er einkennir fyrirhugaðar framkvæmdir við Blöndulínu 3 og hvetur landsmenn alla til að kynna sér þá eyðileggingu sem kerfisáætlun Landsnets mun hafa í för með sér,“ segir í ályktuninni.

Umfjöllun um málið á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert