Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ lýsir bæði furðu minni og undran yfir yfirlýsingu framkvæmdastjóra SA, Þorsteins Víglundssonar, þess efnis að fyrirtækin í landinu skili ekki styrkingu krónunnar til neytenda vegna þess að þau geri ráð fyrir því að þetta sé tímabundin styrking og að framundan sé frekari veiking krónunnar.
„Sé þetta rétt er nokkuð ljóst að hér verður ekki sest að neinum sáttaviðræðum á næstu mánuðum og misserum heldur sé verkalýðshreyfingin sett í þá stöðu að þvinga fram eðlilegar kjarabætur til að bæta launafólki upp kostnaðinn háu verðlagi og vöxtum. Atvinnurekendur verða að gera sér grein fyrir því, að nú reynir á trúverðugleika þeirra gagnvart neytendum og launafólki því afar mikilvægt sé að svigrúm til verðlækkana skili sér jafnharðan í lækkuðu verðlagi ef hér á að takast að forða slysi,“ segir Gylfi.