Deilu vísað til ríkissáttasemjara

Hvalaskoðun frá Húsavík
Hvalaskoðun frá Húsavík mbl.is/Árni Torfason

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslu, Framsýn, hafa ákveðið að vísa kjaradeilu félagsins við Samtök atvinnulífsins vegna starfsmanna við hvalaskoðun á Húsavík til ríkissáttasemjara þar sem viðræður hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Þetta kemur fram á vef Framsýnar.

Þrjú fyrirtæki á Húsavík starfrækja hvalaskoðun en voru tvö á árinu 2012. Á síðasta ári átti félagið í viðræðum við fyrirtækin tvö um kjarasamning fyrir starfsmenn. Eftir samræður á þeim tíma vísuðu fyrirtækin samningsumboðinu til Samtaka atvinnulífsins. Síðan þá hefur Framsýn átt í viðræðum við SA. Því miður hafa viðræðurnar ekki skilað árangri, ekki síst þar sem Samtök atvinnulífsins, hafa dregið umræðuna og ekki verið tilbúin að klára málið þrátt fyrir margítrekaðar óskir Framsýnar þess efnis, samkvæmt frétt á vef Framsýnar.

„Málið er að störf fólks við hvalaskoðun tekur til mismunandi kjarasamninga. Svo sem til kjarasamninga sjómanna og starfsfólks í ferðaþjónustu. Reyndar má færa fyrir því rök að störf starfsmanna við hvalaskoðun nái einnig til kjarasamninga verslunar- og skrifstofufólks og starfsmanna sem starfa eftir almenna kjarasamningnum sem er milli Framsýnar og Samtaka atvinnulífsins.  Þess vegna ekki síst er mikilvægt að viðsemjendur komi sér saman um eftir hvaða kjarasamningi/samningum eigi að fara varðandi starfsmenn við hvalaskoðun á Húsavík,“ segir í frétt Framsýnar.

Framsýn bindur vonir við að ríkisáttasemjari boði deilendur til fundar í þessari viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert