Krefjast leiðréttingar launa aftur að hruni

Már Guðmundsson seðlabankastjóri færði rök fyrir auknum launakröfum í bréfi …
Már Guðmundsson seðlabankastjóri færði rök fyrir auknum launakröfum í bréfi til kjararáðs. mbl.is/Ómar

Formenn Bandalags háskólamanna og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja munu í kjaraviðræðunum í haust fara fram á að laun félagsmanna sinna verði leiðrétt með tilliti til vísitöluþróunar frá efnahagshruninu haustið 2008.

Er með kröfunni vísað til sambærilegrar kröfu Félags forstöðumanna ríkisstofnana (FFR) sem krefst 10-20% hækkunar til að vega á móti frystingu launa eftir hrunið.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB,  starfsmenn ríkisstofnana gera sömu launakröfur og yfirmenn þeirra hjá sömu stofnunum. Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM, segir laun félagsmanna ekki hafa haldið í við verðlagsþróun

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert