Dúettinn Foxy Ladies var krýndur draggdrottingar á Draggkeppni Íslands, sem fram fór í Eldborgarsal Hörpunnar í kvöld. Dúettinn samanstendur af þeim Márky Cántalejo og Chris Mercado.
Brjánn Hróðmarsson var krýndur draggkóngur, en Brjánn er sviðsnafn Ylfu Lindar Gylfadóttur.
Ellefu tóku þátt í keppninni, fimm karlmenn og sex konur, þar af þrír dúettar.
Kynnir kvöldsins var Diva Jackie Dupree.
Keppnin er haldin í tengslum við Hinsegin daga, en gleðigangan verður farinn á laugardaginn.