Ótakmörkuð heimild til að grýta þingmenn

Björn Valur Gíslason, varaþingmaður VG. Alþingi.
Björn Valur Gíslason, varaþingmaður VG. Alþingi. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Á undanförnum árum hefur orðið til sú skemmtilega hefð að almenningur hefur haft nær ótakmarkaða heimild til að grýta þingmenn einn dag á ári, þingsetningardaginn,“ segir Björn Valur Gíslason, varaformaður Vinstri grænna. Hann segist þó ekki eiga von á því að almenningur muni grýta hægristjórnina.

Björn Valur skrifar um málið á vefsvæði sitt. Hann segir að almenningur muni ekki grýta þingmenn eða eyða tíma sínum og orku til mótmæla. „Ekki eins og gert var við þá stjórnmálamenn sem tókust á við erfiðleika Hrunsins sem núverandi stjórnarflokkar sköpuðu. Það lið var eggjanna virði.“

Hann segir að tími mótmæla sé liðinn, almenningur muni ekki mótmæla hægristjórninni, hvorki með því að grýta mjúkum hlutum í þingmenn né öðrum hætti. „Móðir allra loforða hangir yfir almenningi. Stærsta aðgerð í veraldarsögunni er handan við hornið. Útreikningarnir munu liggja fyrir í nóvember en óljóst hvenær greitt verður út. Yfirlýsingar af þessari stærðargráðu hafa ekki heyrst áður á vesturlöndum. Meiningar eru uppi um pólitíska heilsu valdamestu manna landsins. Fólk er óttaslegið og áhyggjufullt um afleiðingar þess að mótmæla.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert