Greiðslumark aukist um 7 milljónir lítra

Sala á mjólkurvörum hefur verið mjög góð á þessu ári.
Sala á mjólkurvörum hefur verið mjög góð á þessu ári. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Stjórn Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði ákvað á fundi sínum í dag að gera tillögu um 123 milljón lítra greiðslumark mjólkur árið 2014. Gangi tillagan eftir, þýðir hún aukningu á greiðslumarki um sjö milljónir lítra frá yfirstandandi ári, meira en dæmi eru um áður.

Tillaga um þessa miklu aukningu er til komin vegna verulegrar söluaukningar mjólkurafurða á innanlandsmarkaði undanfarin misseri, sérstaklega á fituríkari afurðum. Landssamband kúabænda segir þessa þróun á neyslu mjólkurafurða afar jákvæða fyrir íslenska kúabændur og feli í sér margvísleg tækifæri fyrir greinina.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gefur út reglugerð um greiðslumark mjólkur á næstu vikum.

Aukning greiðslumarksins hefur ekki áhrif á umfang stuðnings hins opinbera við búgreinina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert