Erfitt að fá vinnu við hæfi

Svo virðist sem minna framboð sé á störfum fyrir sér- …
Svo virðist sem minna framboð sé á störfum fyrir sér- eða háskólamenntað fólk. mbl.is/Golli

Ungt og vel menntað fólk, sem hefur jafnvel tvær meistaragráður, á í erfiðleikum með að fá atvinnu við hæfi eftir útskrift. Algengt er að um og yfir hundrað manns sæki um störf sem vinnumiðlanir auglýsa þessa dagana.

Að sögn Þóris Þorvarðarsonar, ráðningarstjóra Hagvangs, virðist vera minna framboð á störfum fyrir fólk með sér- eða háskólamenntun en almennum störfum.

Í fréttaskýringu um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Þórir fjölda umsækjenda verða til þess að margt ungt fólk fái ekki vinnu við sitt hæfi frekar en reynsluleysi þess.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert