Um helmingur styður ríkisstjórnina

Ríkisstjórnin við valdatökuna á Bessastöðum.
Ríkisstjórnin við valdatökuna á Bessastöðum. mbl.is/Golli

Ríkisstjórnin nýtur stuðnings rétt ríflega helmings svarenda sem afstöðu taka í nýrri netkönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, sem gerð var fyrir Morgunblaðið.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 50,3% styðja ríkisstjórnina en 49,7% sögðust ekki gera það, að því er fram kemur í úttekt á niðurstöðum könnunarinnar í Morgunblaðinu í dag.

Könnunin var gerð eftir að aðgerðir ríkisstjórnarinnar í skuldamálum voru kynntar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert