Líðan konunnar er óbreytt

mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Líðan konunnar sem slasaðist í eldsvoða í Breiðholti í nótt er óbreytt. Hún er þungt haldin að sögn læknis á gjörgæsludeild Landspítalans.

Konan, sem er á fertugsaldri, var ásamt 13 ára dóttur sinni í íbúð í Írabakka þar sem eldurinn kviknaði. Mæðgurnar komust út við illan leik skömmu áður en slökkviliðið mætti á staðinn. Konan er með brunasár og fékk reykeitrun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert