Tveir með fyrsta vinning

Lottó
Lottó

Tveir voru með fyrsta vinning í Lottóútdrætti kvöldsins og fengu í sinn hlut tæpar 70 milljónir króna hvor en potturinn var tæplega 140 milljónir. Annar miðinn var keyptur á heimasíðu Íslenskrar getspár, lotto.is, og hinn á bensínstöðinni Select, Bústaðavegi.

Tíu voru með fjórar tölur réttar ásamt bónustölu og hlýtur hver um sig tæpar 200 þúsund krónur.

Tölur kvöldsins voru: 29 - 1 - 6 - 15 - 23 og var bónustalan 36.

Enginn var með allar jókertölurnar réttar í réttri röð en tuttugu voru með fjórar réttar í réttri röð og hlýtur hver um sig 100 þúsund krónur

Hæsti vinningur til þessa var 80 milljónir sem er sá stærsti sem einstaklingur hefur hlotið í íslensku happdrætti.

Frétt mbl.is: Lottópotturinn er 139 milljónir

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert