Rólegt hjá björgunarsveitum í nótt

Nokkuð rólegt var hjá björgunarsveitum í nótt, en þær sinntu …
Nokkuð rólegt var hjá björgunarsveitum í nótt, en þær sinntu engu að síður nokkrum útköllum á Norður- og Austurlandi. Mynd/Landsbjörg

Nokkuð rólegt var hjá björgunarsveitum í nótt og í morgun. Seint í gærkvöldi voru björgunarsveitarmenn við Mývatn beðnir um að aðstoða við sjúkraflutning og þá kom útkall í nótt um fastan bíl á Fagradal sem Björgunarsveitin á Héraði annaðist. Í morgun hefur svo Björgunarsveitin Vopni á Vopnafirði aðstoðað RARIK við að athuga með rafmagnslínur á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert