Fundað um bankaskatt á morgun

Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Aðdragandi skuldafrímarksins er þannig að umsagnir um frumvarp um breytingar á bankaskatti vöruðu við því að hækkun skatthlutfallsins myndi koma þungt niður á minni fjármálafyrirtækjum. Bent var á að við því mætti bregðast með frískuldamarki.“

Þetta skrifar Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á heimasíðu sína í dag en á morgun verður haldinn fundur um málið í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Hefur verið óskað eftir upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu um hvernig bankaskatturinn leggst á einstök fyrirtæki.

Frosti segir að í byrjun desember hafi komið fram áform um að hækka bankaskattinn verulega og ákvað því meirihluti nefndarinnar, þann 10. desember, að leggja fram tillögu að undanþágu frá bankaskatti fyrir minni fjármálafyrirtæki. Var lögð áhersla á að undanþága kæmi fram strax við aðra umræðu svo umfjöllun um hana gæti átt sér stað í þinginu.

„Sama dag sendi nefndarritari tölvupóst á fjármálaráðuneytið þar sem greint var frá ákvörðun meirihlutans og óskað eftir að ráðuneytið undirbyggi slíka tillögu og sendi nefndinni. Í tillögu nefndarinnar og pósti til ráðuneytis var ekki tekin afstaða til hver upphæð skuldafrímarks ætti að vera, því nefndin hafði ekki unnið þá vinnu eða ályktað sérstaklega um það. Venjan er líka sú að fjármálaráðuneytið, sem hefur sérfræðinga og gögn um skattstofna komi til hjálpar. Aðalatriðið er að nefndin kom markmiðinu skýrt til skila til ráðuneytisins: að veita minni fjármálafyrirtækjum undanþágu, fjárhæðin yrði að ráðast af því,“ skrifar Frosti.

Daginn eftir, eða 11. desember, mættu fulltrúar ráðuneytisins á nefndarfund og kynntu úrbætur á frumvarpinu. Kom meðal annars fram útfærsla frískuldamarksins og talan 50 milljarðar nefnd sem stærðargráða til skoðunar. 

„Í áliti meirihlutans fyrir 2. umræðu sem dreift var 16. desember komu fram rök fyrir frískuldamarkinu og gerð tillaga um að það yrði 50 milljarðar. Fyrsti minnihluti lagði einnig til 50 ma frískuldamark í sínu áliti,“ skrifar Frosti. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert