Játningar og neitanir í IKEA-máli

IKEA á Íslandi.
IKEA á Íslandi. mbl.is/Hjörtur

Karl og kona játuðu sök fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær í máli sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu höfðaði í svokölluðu IKEA-máli. Alls voru tvö mál þingfest í héraði í gær og í öðru þeirra neituðu karl og kona sök og er aðalmeðferð í málinu áætluð 18. mars.

Dómur verður hins vegar kveðinn upp í játningarmálinu 12. mars nk. samkvæmt upplýsingum frá ákæruvaldinu.

Í játningarmálinu voru karlmaður á fimmtugsaldri og kona á fertugsaldri ákærð þann 4. febrúar fyrir fjársvik með því að hafa í sameiningu á tímabilinu 1. september til 30. september 2012, í alls fimm skipti, við kaup á vörum í verslun IKEA í Kauptúni í Garðabæ, blekkt starfsmenn við afgreiðslukassa til að afgreiða nokkrar vörur án þess að þau greiddu fullt verð fyrir þær. Fram kemur í ákæru að þau hafi komið fyrir eða nýtt sér að strikamerki af ódýrari vöru, barnastól  að verðmæti 3.490 kr., hafði verið komið fyrir á umbúðum þeirra. Í framhaldi skiluðu ákærðu vörunum, án kvittunar, og fengu inneignarnótu í versluninni að verðmæti þeirrar vöru sem skilað var. Með þessum hætti fengu þau vörur, samtals að fjárhæð 269.750 kr., gegn greiðslu alls kr. 17.450 kr.

Sama par er ennfremur ákært fyrir tilraun til fjársvika með því að hafa í sameiningu þann 15. desember 2012, við kaup í verslun IKEA, reynt að blekkja starfsmann við afgreiðslukassa til að afgreiða speglaskáp, að verðmæti 44.950, gegn greiðslu að fjárhæð 3.490, með því að koma fyrir eða nýta sér að strikamerki af barnastól, að verðmæti 3.490, hafði verið komið fyrir á umbúðum speglaskápsins en starfsmaðurinn tók eftir að rangt strikamerki var á vörunni áður en til greiðslu kom.

Ákæruvaldið krafðist þess að parið yrði dæmt til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Sem fyrr segir var háttsemin samkvæmt ákæru játuð og verður dómur kveðinn upp í málinu 12. mars. 

Neituðu sök

Í hinu málinu voru karlmaður á fertugsaldri og kona á þrítugsaldri ákærð þann 4. febrúar sl fyrir fyrir fjársvik með því að hafa þann 7. október 2012, í sameiningu við kaup á vörum í verslun IKEA í Kauptúni í Garðbæ, blekkt starfsmann við afgreiðslukassa, til að afgreiða borðgrind, að verðmæti 89.950 kr., gegn greiðslu að fjárhæð kr. 3.650, með því að koma fyrir eða nýta sér að strikamerki af hliðareiningu, að verðmæti 3.650 kr., hafði verið komið fyrir á umbúðum borðgrindarinnar.

Aðalmeðferð í neitunarmálinu mun hefjast 18. mars nk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert