Búðarhálsvirkjun gangsett

Landsvirkjun

Búðarhálsstöð, nýjasta aflstöð Íslendinga, var gangsett af Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, og Ragnheiði Elínu Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, við formlega athöfn í dag. Búðarhálsstöð, sem nefnd er svo eftir að virkjunarframkvæmdum lýkur og rekstur hefst, verður nýjasta aflstöð Landsvirkjunar, að því er segir í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Búðarhálsstöð er á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu og verður rekin samhliða öðrum aflstöðvum Landsvirkjunar á svæðinu. Uppsett afl hennar er 95 MW og hún framleiðir um 585 GWst af rafmagni á ári inn á orkukerfi landsmanna. Hún er sjöunda stærsta aflstöð Landsvirkjunar.

Framkvæmdirnar til fyrirmyndar

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að framkvæmdirnar við Búðarhálsvirkjun hafi verið til fyrirmyndar í alla staði og vert að geta þess hversu mikil eining hafi verið um framkvæmdina.

„Við hjá Landsvirkjun erum ánægð og hreykin á þessari stundu. Búðarhálsstöð verður 16. aflstöð Landsvirkjunar sem vinnur hreina og endurnýjanlega orku inn á raforkukerfi landsmanna og skapa verðmæti um ókomin ár fyrir eiganda okkar, íslenska þjóð,“ er haft eftir Herði í tilkynningunni.

Þar segir jafnframt að Búðarhálsstöð marki í raun nokkur tímamót í uppbyggingu virkjana á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu en með henni sé virkjað áður ónýtt 40 metra fall vatns í Tungnaá úr frávatni Hrauneyjafossvirkjunar að Sultartangalóni. Þar með sé allt fall vatnsins virkjað sem rennur frá Þórisvatni og alveg niður fyrir Búrfell. Fallið í heild sinni sé 450 metrar.

400 starfsmenn þegar mest lét

Lón Búðarhálsstöðvar heitir Sporðöldulón og er myndað með tveimur stíflum. Önnur þverar farveg Köldukvíslar og hin frávatn Hrauneyjafossstöðvar. Frá Sporðöldulóni liggja 4 kílómetra löng jarðgöng sem leiða vatnið undir Búðarháls að inntaki stöðvarinnar.

Þegar mest lét á framkvæmdatímanum störfuðu hátt í 400 manns við byggingu Búðarhálsvirkjunar. Um tvær milljónir vinnustunda fóru í byggingu Búðarhálsvirkjunar, eða um 900 ársverk oft við mjög krefjandi og erfiðar aðstæður. 

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Landsvirkjun
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert