Ást og friður á Hvolsvelli

Hann er skrautlegur og í anda þema góuballsins.
Hann er skrautlegur og í anda þema góuballsins. mbl.is/Jóna Sig

Skrautlegur bíll stendur fyrir utan félagsheimilið Hvol á Hvolsvelli. Einnig sjást um allt þorp dömur á öllum aldri með sérsaumaðar Hippatöskur og skrautleg armbönd.

Mætti halda að þorpið væri allt að breytast í Woodstock nýlendu.  En tilefnið er Góuball hjá kvenfélaginu Einingu annað kvöld. Þemað í ár er hippatíminn.  

Þess vegna eru þær búnar að sitja og sauma hippatöskur, mussur, útvíðar gallabuxur, lita boli, gera hippaarmbönd og ennisbönd ásamt mörgu öðru sem tengist þessari tísku.

Þær mættu svo í Kjarval í vikunni og seldu varninginn. Ágóðinn af öllu þessu og dansleiknum rennur svo óskiptur til leikskólans á staðnum. Skrautleg og glaðleg aðferð til fjáröflunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert