Stefna að nánara samstarfi vegna EES

Vidar Helgesen, Evrópumálaráðherra Noregs, og Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra.
Vidar Helgesen, Evrópumálaráðherra Noregs, og Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Vidar Helgesen, Evrópumálaráðherra Noregs, funduðu í Reykjavík í dag. Fram kemur í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að ráðherrarnir hafi sammælst um að styrkja samvinnu ríkjanna enn frekar í málefnum Evrópska efnahagssvæðisins. Þar á meðal með upplýsingaskiptum, starfsmannaskiptum og nánara samráði á öllum sviðum sem varða samninginn.

„Íslensk og norsk stjórnvöld líta svo á að EES-samningurinn sé grundvöllur samstarfs ríkjanna við Evrópusambandið. Samningurinn greiði fyrir viðskiptum, opni markaði og ýti undir hagvöxt. Ráðherrarnir lögðu áherslu á mikilvægi þess að allir aðilar samningsins gerðu sitt til að tryggja framkvæmd hans,“ segir ennfremur.

Ríkisstjórnir landanna hafi tekið upp breytta stefnu í Evrópumálum frá því að þær tóku við völdum á síðasta ári og á fundinum hafi ráðherrarnir rætt um þá möguleika og áskoranir sem fælust í EES-samvinnunni. „Þeir lögðu áherslu á að vinna saman að úrbótum, einkum varðandi upptöku regluverks í EES-samninginn og löggjöf landanna, svo að tryggja mætti áfram jafnan markaðsaðgang í Evrópu fyrir íslensk og norsk fyrirtæki. Stjórnvöld í báðum löndum hyggjast grípa til aðgerða til að tryggja hraðari innleiðingu.“

Þá hafi ráðherrarnir verið sammála um að það væri forgangsverkefni að taka þátt í ákvarðanaferli ESB þegar sambandið ræddi nýja löggjöf varðandi innri markaðinn og þar með EES. „Þá væri báðum þjóðum mikilvægt að nýta sem best þá möguleika sem fælust í þátttöku í ESB-verkefnum á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar o.fl.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert