Varar við gjaldtöku við náttúruperlur

Varað er við þeirri þróun að gjald sé tekið af einstaklingum sem vilja heimsækja og skoða náttúruperlur á Íslandi í ályktun sem samþykkt var á formannafundi Starfsgreinasambands Íslands sem fram fór síðastliðinn fimmtudag. Þá ályktaði fundurinn einnig um aðstöðumun fólks sem þarf að sækja grunnþjónustu um langan veg.

„Flestir hafa skilning á því að það þarf fjármuni til að halda stöðunum við og vernda náttúruna fyrir átroðningi. Slíkir fjármunir eiga hins vegar að koma úr sameiginlegum sjóðum enda á gjaldtaka að fara í gegnum sameiginlega sjóði líka, hvort sem það verður í formi náttúrupassa eða skatts á ferðaþjónustu. Það er ófært að einstaka aðilar innheimti gjald eftir eigin höfði á einstaka stöðum og er lögmæti slíkrar innheimtu mjög á reiki. Náttúruperlur eru auðlind þjóðarinnar og sameiginleg eign landsmanna. Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands vara við þeirri þróun að náttúruperlur séu notaðar til arðs eingöngu fyrir fáa einstaklinga,“ segir í ályktun fundarins um gjaldtöku á ferðamannastöðum.

Þá var sem fyrr segir einnig ályktað um aðstöðumun sem fólk byggi við eftir búsetu vegna grunnþjónustu. „Misjafnt aðgengi að grunnþjónustu svo sem heilbrigðisþjónustu verður þess valdandi að launafólk þarf að nýta sumarfrí og veikindadaga til að sækja þjónustu um langan veg. Þetta kemur niður á frídögum fólks og skekkir samkeppnisstöðu fyrirtækja um landið. Þar að auki fylgir mismikill ferða- og dvalarkostnaður fyrir fólk sem þarf að nýta sér þjónustu fjarri heimabyggð og kemur fram sem hrein kjaraskerðing launafólks. Misvægið hefur aukist enn eftir því sem þjónusta hefur dregist saman síðustu ár og verður ekki litið fram hjá miklum og vaxandi aðstöðumun lengur.“

Þá segir að formannafundur Starfsgreinasambandsins hvetji eindregið til þess að ríki, byggðastofnun og aðilar vinnumarkaðarins „taki höndum saman um að finna lausnir til að vinna gegn þessu misrétti“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert