Fresta boðuðu verkfalli

Háskóli Íslands.
Háskóli Íslands. mbl.is/Sigurður Bogi

Félag háskólakennara hefur ákveðið fresta boðuðu verkfalli dagana 25. apríl til 10. maí 2014, eftir viðræður við samninganefnd ríkisins.

Að því tilefni vill Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands taka eftirfarandi fram:

„Afar mikilvægt er fyrir 14.000 nemendur Háskóla Íslands að ekki komi til verkfalls. Slíkt hefði ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér.

Á undanförnum árum hafa félagsmenn Félags háskólakennara tekið á sig launaskerðingu, aukna kennsluskyldu og aukið álag vegna mikillar fjölgunar nemenda. Háskóli Íslands mun koma til móts við óskir Félags háskólakennara eftir fremsta megni.

Samhliða því treystir Háskóli Íslands á stuðning stjórnvalda, sbr. yfirlýsingu í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar um Aldarafmælissjóð. Hún felur í sér að staðið verði við samning varðandi stefnumótun um fjármögnun Háskóla Íslands þannig að tekjur hans verði sambærilegar meðaltali framlaga OECD-þjóða til háskóla og síðar meir meðaltali framlaga háskóla á Norðurlöndum.“

Ekki hefur náðst í Jörund Guðmundsson, formann Félags háskólakennara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka