Ríkissaksóknari staðfestir að embættið hefur til rannsóknar ætluð brot lögreglumanns vegna uppflettingar og meðferðar á upplýsingum úr upplýsingakerfi lögreglunnar. Tveir aðrir menn hafa réttarstöðu sakborninga við rannsóknina. Þetta kemur fram í frétt á vef ríkissaksóknara.
Mbl.is greindi frá því á sunnudag að lögreglumanni hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hefði tímabundið verið vikið frá störfum vegna rannsóknar á meintum brotum hans í starfi.
Samkvæmt heimildum mbl.is var lögreglumaðurinn handtekinn fyrir páska þar sem hann var í sumarhúsi á landsbyggðinni.
Í frétt ríkissaksóknara segir:
„Vegna umfjöllunar fjölmiðla um mál sem varðar m.a. ætluð brot lögreglumanns staðfestir ríkissaksóknari að embættið hefur til rannsóknar, á grundvelli 1. mgr. 35. gr. lögreglulaga nr. 90/1996, ætluð brot lögreglumanns vegna uppflettingar og meðferðar á upplýsingum úr upplýsingakerfi lögreglu (LÖKE). Rannsóknin lýtur einkum að ætluðum brotum á ákvæðum XIV. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem fjallar um brot í opinberu starfi. Tveir aðrir menn hafa réttarstöðu sakborninga við rannsóknina.“
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum aðstoðar ríkissaksóknara við rannsókn málsins, sbr. 3. mgr. 35. gr. lögreglulaga.
Frétt mbl.is: Brot lögreglumanns til rannsóknar