Gjaldtaka austan Námaskarðs hefst í dag

Ferðamaður við Námaskarð. Hér eftir munu ferðamenn greiða fyrir að …
Ferðamaður við Námaskarð. Hér eftir munu ferðamenn greiða fyrir að aðgang að hverasvæðinu. Rax / Ragnar Axelsson

Gjaldtaka á hverasvæðinu austan Námaskarð hefst í dag. Búið er að setja upp afmarkandi hindranir og er ferðamönnum beint að hliði þar sem gjaldtakan fer fram. Hún verður 800 krónur.

Þetta staðfesti Ólafur H. Jónsson, talsmaður landeigendafélagsins við Reykjahlíð og verkefnastjóri yfir gjaldtökunni, við mbl.is.

 Að sögn Ólafs voru settar upp „leiðbeinandi girðingar“ að hliðum þar sem starfsmenn taka á móti ferðamönnum. „Við sömdum við Vatnajökulsþjóðgarð um að fresta gjaldtöku við Dettifoss um eitt ár. Síðan þá höfum við verið að undirbúa gjaldtökuna hér (austan Námaskarðs) sem hefst síðdegis í dag,“ segir Ólafur.

Skilur ekki mótbárur 

Hann hefur ekki nákvæma tölu á því hversu margir fara um svæðið á dag, en bendir á að í gær hafi um eitt þúsund manns heimsótt svæðið í góða veðrinu.

Hann segir að 8-10 manns muni starfa við það að sinna gjaldtökunni.

Ólafur hefur ekki áhyggjur af mótbárum almennings. „Ég er mjög hissa ef menn eru á móti þessu. Við erum að bæta aðstöðu túrista með því að biðja þá um að taka þátt í því að gera náttúruna sjálfbæra. Til þess þurfum við peninga,“ segir Ólafur. Að sögn hans verður innheimt gjald af Íslendingum sem og útlendingum.

Öryggisatriði 

Hann bendir á að einnig sé um öryggisatriði að ræða þar sem hverasvæðið sé hættulegt og fólk sinni gjarnan ekki þeim afmörkunum sem þegar hafa verið sett upp og fari alveg að hverunum. Með starfsfólk á svæðinu sé hægt að sinna betur öryggi gesta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert