Hvolsvöllur í vel sveit settur

Frá Hvolsvelli.
Frá Hvolsvelli. www.mats.is

Sveitarstjórn Rangárþings eystra fagnar þeirri ákvörðun innanríkisráðherra að höfuðstöðvar lögreglustjóraembættisins á Suðurlandi verði á Hvolsvelli. Sveitarstjórnin segir að Hvolsvöllur sé miðsvæðis á Suðurlandi og því sé byggðalagið vel í sveit sett.  

Þetta kemur fram í ályktun sem sveitarstjórnin lét bóka á fundi sínum 16. júní sl. 

„Sveitarstjórnin mælir einnig eindregið með því að Kjartan Þorkelsson, sýslumaður,  verði lögreglustjóri í þessu nýja umdæmi.  Ástæðan er m.a. sú að Kjartan Þorkelsson og starfsmenn embættis hans hafa byggt upp öflugar almannavarnir í samvinnu við viðbragðsaðila og íbúa umdæmis lögreglustjórans á Hvolsvelli.  Reyndi verulega á skipulagningu þessara mála í þeim stóru áföllum sem hér urðu á síðustu árum í eldgosunum í Eyjafjallajökli 2010 og Grímsvötnum 2011 svo og við stórflóð í Múlakvísl 2012, sem sýndu svo ekki verður um villst mikilvægi þess að hafa öflugt fólk með víðtæka reynslu á þessu sviði við stjórnvölinn þegar á reynir.  Þá hefur Kjartan og hans fólk verið ötult við að byggja upp og styrkja sameinað lögregluembætti í Rangárvallasýslu og Vestur – Skaftafellssýslu,“ segir í bókuninni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert