Lögreglan hefur lokið rannsókn á hópnauðgun í Breiðholti og er málið komið til embættis ríkissaksóknara. Hið sama á við um rannsókn á óeðlilegum flettingum í lögreglukerfi ríkislögreglustjóra, LÖKE.
Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar, er það nú alfarið í höndum ríkissaksóknara hvort fimm piltar á aldrinum 17 til 19 ára sem eru grunaðir um að hafa nauðgað sextán ára stúlku í byrjun maí verði ákærðir. Þeir sátu um tíma i gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn málsins.
Piltarnir hafa allir gengist við því að hafa haft samfarir við stúlkuna, en segjast hafa talið að hún væri því samþykk.
Rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum á meintum brotum lögreglumanns sem er sakaður um óeðlilegar flettingar í lögreglukerfi ríkislögreglustjóra, LÖKE, er lokið og komið á borð ríkissaksóknara. Upphaflega voru þrír með réttarstöðu sakbornings í málinu en nú eru þeir tveir.
Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissaksóknara mun það liggja fyrir innan tíðar hvort ákært verður í málinu.
Rannskókn á líkamsárás á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi er langt komin en ekki vitað hvort málinu verði vísað til ákæruvaldsins, að sögn Friðriks Smára.
Einn maður sat í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsóknina í viku. Sá er grunaður um að hafa slegið, skallað og hrint öðrum manni sem hlaut lífshættulega áverka á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi aðfararnótt uppstigningadags.
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á líkamsárás sem átti sér stað við Selbrekku í Kópavogi er einnig langt komin að sögn Friðriks Smára en karlmaður fannst liggjandi í blóði sínu fyrir utan hús í götunni að morgni 30. maí sl.
Maður sem er grunaður um árásina var handtekinn og úrskurður til að sæta gæsluvarðhaldi og einangrun til 6. júní sl. Ekki var farið fram á áframhaldandi gæsluvarðahald.