Líkfundur í Bleiksárgljúfri

Umfangsmikil leit var í Bleiksárgljúfri í síðasta mánuði.
Umfangsmikil leit var í Bleiksárgljúfri í síðasta mánuði. mbl.is/Eggert

Björgunarsveitarmenn Landsbjargar fundu lík konu í Bleiksárgljúfri í Fljótshlíð í gærkvöld. Talið er að líkið sé af Ástu Stefánsdóttur, sem leitað hefur verið að síðan 10. júní.

Líkið fannst fremst í gljúfrinu, en lík sambýliskonu hennar, Pino De Los Ageles Becerra Bolanos, fannst ofar í gljúfrinu hinn 10. júní.

Lögreglan á Selfossi mun áfram vinna að rannsókn málsins en frekari upplýsingar verða ekki gefnar að svo stöddu.

Ásta Stefánsdóttir
Ásta Stefánsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert