Löng bið eftir hamborgurum og rifjum

Margir vildu prófa nýja veitingastaðinn á Miklubraut í dag.
Margir vildu prófa nýja veitingastaðinn á Miklubraut í dag. mbl.is/Eva Björk

Hún var löng, biðröðin fyrir framan nýja veitingastaðinn Dirty Burger & Rib í dag. Staðurinn opnaði með pompi og prakt klukkan fjögur í dag og af því tilefni var allt á matseðlinum frítt, á meðan birgðir entust.

Fyrstu gestir, þeir svengstu, voru mættir um þrjúleytið og myndaðist tiltölulega fljótt löng biðröð. Staðurinn sjálfur er ekki ýkja stór, tekur um fimmtán manns í sæti, og var því hleypt inn í hollum.

Veitingastaðurinn stendur við bensínstöðina Orkuna á Miklubraut, á móti Kringlunni. Athygli vekur að einungis tveir réttir eru á boðsstólnum, svínarif og hamborgari.

Agn­ar Sverris­son opn­ar staðinn en hann er eini ís­lenski kokk­ur­inn sem hlotið hef­ur svokallaða Michelin-stjörnu viður­kenn­ingu.

Staðurinn var opinn frá klukkan fjögur til átta í kvöld og verður aftur opinn á morgun, en þá frá klukkan ellefu að morgni til tíu að kveldi.

Sjá frétt mbl.is: Allt frítt á Dirty Burger & Ribs

Biðröðin náði ansi langt.
Biðröðin náði ansi langt. mbl.is/Eva Björk
Starfsmenn veitingastaðarins höfðu í nógu að snúast í dag.
Starfsmenn veitingastaðarins höfðu í nógu að snúast í dag. mbl.is/Eva Björk
Agnar Sverrisson, eigandi staðarins, ásamt föður sínum.
Agnar Sverrisson, eigandi staðarins, ásamt föður sínum. mbl.is/Eva Björk
Svona lítur hamborgarinn út.
Svona lítur hamborgarinn út. mbl.is/Eva Björk
mbl.is/Eva Björk
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert