Samkvæmt upplýsingum frá Almannavörnum er TF-SIF, flugvél landhelgisgæslunnar, komin til landsins frá Sikiley á Ítalíu. Verður hún send í flug yfir Bárðarbungu um hádegi á morgun.
Vélin millilenti í Bretlandi til eldsneytistöku áður en hún kom svo hingað til lands í dag. Vélin er búin ratsjám sem geta kortlagt yfirborð gosstöðvanna og jökulsins og gert vísindamönnum kleift að fylgjast með yfirborði jökulsins og hraunflæði, óháð skýjafari og birtu.
Búnaðurinn á einnig að geta kortlagt breytingar á mannvirkjum, svo sem vegum, brúm og rafmagnslínum sem hugsanlega geti orðið fyrir skemmdum vegna flóða.
Þá gerir vélin vísindamönnum unnt að fylgjast grannt með dreifingu og hæð öskustróks. Flugvélin er einnig búin hitamyndavél sem gagnast við að meta ástandið á svæðinu og þróun mála.
Sjá frétt mbl.is: TF-SIF fylgist með Bárðarbungu