Gáfu Fjölskylduhjálpinni frystiklefa

Bandaríska fjarskiptafyrirtækið ShoreTel heimsótti í dag Fjölskylduhjálpina og gaf góðgerðarfélaginu meðal annars nýjan frystiklefa. Heimsóknin var hluti af starfsmannaferð fyrirtækisins en rúmlega hundrað manns hafa eytt síðustu dögum hér á landi í boði fyrirtækisins.

„Fjölskylduhjálp vantaði nýjan frystiskáp og ShoreTel gekk í málið. Þau fjárfestu í risastórum frystiklefa, ég held að hann sé um tólf fermetrar. Þau keyptu einnig málningu og máluðu allt húsið að utan. Síðan tóku þau þátt í matarúthlutun og þrifu allar gömlu frystikisturnar svo hægt væri að nota þær annars staðar,“ segir Jóhanna Eyjólfsdóttir en fyrirtæki hennar, HL Adventure, sérhæfir sig í því að taka við erlendum ferðahópum og sá um að skipuleggja ferðina.

Skipulagðar góðgerðarferðir

„Hópurinn er búinn að fara í allskonar afþreyingarferðir síðustu daga. Fyrirtækið er að gera vel við sitt hæsta sölufólk en er á sama tíma að taka þátt í samfélagsverkefnum. Starfsfólk fyrirtækisins gefur til baka til samfélagsins og þeirra sem minna mega sín í því landi sem þau fara til hverju sinni,“ segir Jóhanna. HL Adventure hefur verið iðið við kolann við að skipuleggja sambærilegar góðgerðarferðir og hefur meðal annars skipulagt ferðir til styrktar Barnaspítala Hringsins, Björgunarsveitanna og Fjölskylduhúss.

„Þetta gengur þannig fyrir sig að við veljum úr mismunandi góðgerðarfélögum og sendum á viðskiptavini okkar allar upplýsingar um þau. Viðskiptavinurinn velur sér síðan góðgerðarfélag, í þessu tilviki var það Fjölskylduhjálpin,“ segir hún.

Forsetinn lék á als oddi

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mætti á svæðið ásamt konu sinni, Dorrit Moussaieff, og ber Jóhanna þeim vel söguna.

„Þau mættu og léku á als oddi, reyttu af sér brandara. Ameríkönunum þótti það mjög merkilegt að þarna væru þau komin án þess að vera með verði eða gæslu í kringum sig,“ segir hún og bætir því við að dagurinn í dag sé síðasti dagur starfsfólks ShoreTel á Íslandi.

„Þau fara á morgun. Í gær voru þau með galakvöldverð í Iðnó þar sem veitt voru verðlaun fyrir söluhæsta fólkið og kynnt hvert þau færu næst. Þau hafa á tíma sínum hér farið í Bláa lónið, hellaskoðun, hvalaskoðun og skoðað flestallt það besta sem Ísland hefur upp á að bjóða,“ segir hún að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert