Stjórnendur hættir hjá iSTV

Framkvæmdastjóri, markaðsstjóri og dagskrárstjóri sjónvarpsstöðvarinnar iSTV hafa sagt upp störfum sínum að því er kemur fram í tilkynningu sem birt hefur verið á Facebook-síðu fyrirtækisins. Þar segir:

„Yfirlýsing frá starfsfólki iSTV

Vegna trúnaðarbrests og samstarfsörðugleika við stjórn og aðaleigendur sjónvarpsstöðvarinnar iSTV sjáum við framkvæmdastjóri, markaðsstjóri og dagskrárstjóri fyrirtækisins ekki frekari grundvöll fyrir áframhaldandi samvinnu.

Við segjum okkur því frá frekari störfum fyrir iSTV og þökkum öllu því hæfileikaríka dagskrárgerðar- og tæknifólki sem kom að verki fyrir frábær störf. Við óskum þeim velfarnaðar og hörmum þá stöðu sem upp er komin.

Með vinsemd og virðingu.

Fyrrverandi starfmenn iSTV“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert