Kettlingarnir þrír sem fundust í Hafnarfirði um helgina hafa fengið tímabundið heimili hjá mjólkandi læðu.
Samkvæmt upplýsingum frá Kattholti hafði fjöldi fólks samband við Kattholt í kjölfar auglýsingar kattaathvarfsins á Facebook og fréttar mbl.is og reyndist því auðsótt að finna hentuga fósturmóður.
Kettlingarnir verða hjá fósturmóður sinni fram að átta vikna aldri en þá verða þeir fluttir aftur í Kattholt þar sem reynt verður að finna þeim varanlegt heimili.
Fundu þrjá kettlinga í Hafnarfirði