Geta ekki reitt sig á Landhelgisgæsluna

Varðskipið Þór.
Varðskipið Þór. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Farmanna- og fiskimannasamband Íslands lýsir áhyggjum sínum af því „ófremdarástandi“ sem Landhelgisgæslunni er ætlað að búa við, eins og segir í ályktun frá sambandinu. Í ályktuninni segir einnig:

„Málum er nú svo komið að einungis er eitt varðskip í rekstri hverju sinni og úthald þess eina skips takmarkað vegna óraunhæfs sparnaðar í olíunotkun skipsins.

Síðustu atvik þegar tvö skip stranda við austifirði með skömmu millibili sýna berlega hve ótækt ástandið er. Það þarf ekki að spyrja að leikslokum ef slík atvik henda á öðrum árstíma þegar allra veðra er von og eina björgunarvonin kann að vera af sjó.

Við núverandi ástand er ljóst að sæfarendur umhverfis landið og á miðum geta ekki reitt sig á aðstoð Landhelgisgæslunnar verði skip eða áhafnir fyrir áföllum.

Skorað er á alþingismenn að tryggja öryggi sæfarenda þannig að varðskip Landhelgisgæslunnar séu gerð út með eðlilegum hætti.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert