Kvarta undan sviða í augum

Grágult mengunarský yfir Þórshöfn í dag.
Grágult mengunarský yfir Þórshöfn í dag. mbl.is/Líney

Mikil mengun er nú yfir Þórshöfn og nágrenni og er fólki ráðlagt að hafa lokaða glugga og vera sem mest inni við, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðsstjóra. „Fólk hefur kvartað um sviða í augum og særindum í öndunarvegi,“ segir einn íbúi sem hafði samband við mbl.is.

Mikil mengun vegna eldgossins í Holuhrauni hefur verið á svæðinu undanfarna daga en dagurinn í dag er verstur. Skyggni er lítið, ekki sést til fjalla og nánast logn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert