Andlát: Ingjaldur Hannibalsson

Ingjaldur Hannibalsson.
Ingjaldur Hannibalsson.

Ingjaldur Hannibalsson, prófessor við Háskóla Íslands, varð bráðkvaddur á heimili sínu í Reykjavík laugardaginn 25. október, 62 ára að aldri.

Ingjaldur fæddist 17.11.1951 og voru foreldrar hans Hólmfríður Ingjaldsdóttir, kennari, og Hannibal Valdimarsson.

Ingjaldur lauk stúdentsprófi frá MR 1971, prófi í eðlisfræði og stærðfræði frá HÍ 1974, M.Sc. prófi 1975 og Ph.D. prófi 1978 í iðnaðarverkfræði frá Ohio State University.

Ingjaldur starfaði á áttunda áratugnum sem stundakennari við MR. Hann starfaði sem aðstoðarkennari og við rannsóknir meðan á dvöl hans við Ohio State University stóð. Hann varð deildarstjóri tæknideildar Félags íslenskra iðnrekenda.

Árið 1978 hóf hann stundakennslu við Háskóla Íslands og varð fastráðinn dósent árið 1982, lengst af í hlutastarfi. Á níunda áratugnum sinnti hann öðrum störfum og var m.a. forstjóri Iðntæknistofnunar, forstjóri Álafoss og framkvæmdastjóri Útflutningsráðs Íslands. Árið 1993 byrjaði hann í fullu starfi við Háskóla Íslands og varð prófessor við skólann í Viðskipta- og hagfræðideild árið 1997.

Í gegnum tíðina hefur Ingjaldur sinnt mörgum trúnaðarstörfum innan Háskóla Íslands, m.a. sem skorarformaður og deildarforseti Viðskipta- og hagfræðideildar, síðar Viðskiptafræðideildar, verið formaður fjármálanefndar Háskólans, framkvæmdastjóri rekstrar- og framkvæmdasviðs skólans og sinnt margvíslegum nefndarstörfum. Ingjaldur sat einnig í stjórnum fyrirtækja og stofnana, í ráðgjafanefndum og faglegum dómnefndum.

Ingjaldur var heimshornaflakkari og hafði nýlokið því markmiði sínu að heimsækja öll 193 þátttökulönd Sameinuðu þjóðanna, verkefni sem tók hann 49 ár en síðustu 63 löndin heimsótti hann á síðustu tíu árum.

Ingjaldur sagði frá ferðum sínum í viðtali á mbl.is í sumar, þegar hann var nýkominn heim frá síðustu löndunum sem þurfti til að ljúka hringnum.

Viðtal: Með heiminn í baksýnisspeglinum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert