Hávært rifrildi feðga vegna tölvuleiks

Tilkynnt var um heimilisófrið til lögreglu um níuleytið í gærkvöldi og sögðu nágrannar að mikið gengi á.

Er lögreglu bar að reyndist feðgum hafa sinnast vegna tölvuleikjanotkunar sonarins. Sonurinn ósáttur við aðfinnsluna og missti bæði skapið og röddina upp undir rjáfur, er segir í tilkynningu frá lögreglu.

Þá var einnig tilkynnt um eld í eldavél. Eldur hafði kviknað þegar verið var að elda sunnudagssteikina. Eldavélin og hamborgarhryggurinn eyðilögðust og þá urðu skemmdi á innréttingunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert