Búið er að útskrifa fólk sem var flutt á slysadeild vegna áreksturs á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar í dag.
Að sögn læknis á slysadeild hlaut fólkið minniháttar áverka. Áreksturinn var þó nokkuð harður og hafnaði annar bíllinn ofan á vegriði.
Frétt mbl.is: Þrír fluttir á slysadeild
Frétt mbl.is: Árekstur á Miklubraut