Hafnarfjarðarbær kannaði símagögn

Hafnarfjörður
Hafnarfjörður mbl.is/SBS

Yfirvöld í Hafnarfjarðarbæ sendu beiðni til símafyrirtækisins sem þjónustar sveitarfélagið þar sem óskað var upplýsinga um hvort hringt hefði verið í tiltekið númer á sex klukkustunda tímabili. Símafyrirtækið svaraði beiðninni með því að afhenda yfirlit yfir öll símanúmer sem hringt var í.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum. Í henni segir einnig að ekki hafi verið kannað við hverja kjörnir fulltrúar eða aðrir starfsmenn sveitarfélagsins töluðu í síma og að við rannsókn á gögnum hafi sveitarfélagið gætt að reglum 7. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

„Hafnarfjarðarbæ barst kvörtun sem fól í sér ásakanir gagnvart ótilgreindum starfsmönnum bæjarins. Kom fram að starfsmaður undirstofnunar bæjarins hafi verið boðaður á fund en hringt hefði verið í hann úr síma skráðum á Hafnarfjarðarbæ.

Ekkert liggur fyrir um þennan fund hjá bænum eða hver stóð fyrir honum. Nauðsynlegt var að kanna hvort og þá hver hefði hringt í starfsmanninn úr síma sem skráður væri á Hafnarfjarðarbæ en númerið hafði hann ekki tiltækt og ekki heldur nöfn þeirra sem sátu fundinn.

Því var það kannað hvort og þá hver hafi hringt í númer starfsmannsins úr símkerfi Hafnarfjarðarbæjar og í kjölfarið var beiðni send til símafyrirtækisins sem þjónustar sveitarfélagið þar sem óskað var upplýsinga um hvort hringt hefði verið í þetta tiltekna númer á sex klukkustunda tímabili.  Símafyrirtækið svaraði beiðninni með því að afhenda yfirlit yfir öll símanúmer sem hringt hafði verið í.

Einn starfsmaður sveitarfélagsins annaðist rannsóknina og miðaði hún einungis að því að kanna hvort hringt hefði verið í þetta tiltekna símanúmer.  Svo reyndist ekki vera og hefur öllum gögnum sem bárust frá símafyrirtækinu verið eytt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert