Varð undir bifreið sem valt

Alvarlegt umferðarslys varð á Garðskagavegi um kvöldmatarleytið í gær þegar bifreið lenti utan vegar og valt. Ökumaðurinn, kona á þrítugsaldri, varð undir bifreiðinni og slasaðist. Tvö ung börn hennar sem einnig voru í bifreiðinni sluppu, að því er virtist, ómeidd, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Suðurnesjum.

Það voru tveir vegfarendur sem komu fyrstir að bifreiðinni á hvolfi utan vegar. Þeir lyftu henni upp og komu henni á hjólin.  Eftir að hafa hringt í neyðarlínuna fóru þeir að sinna börnunum og hlúa að konunni. Hún var flutt á Landspítalann en ekki sögð í lífshættu. Grunur leikur á að hún hafi ekki verið með öryggisbeltið spennt við aksturinn.

Frétt mbl.is: Tvær bifreiðar lentu utan vegar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert