Spyr hvort þörf sé á „öllum þessum skrifstofum“

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að varla sé til það þing í heiminum sem sé svo aumt að það bjóði ekki þingmönnum upp á sómasamlega starfsaðstöðu. Færa megi nokkur rök fyrir því að fjármunir sem færi í nýtt húsnæði við Alþingi myndu skila sér fljótt til baka.

Eins og kunnugt er, er lagt til í þingsályktunartillögu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, sem ríkisstjórnin hefur samþykkt, að reist verði viðbygging við Alþingishúsið byggð á teikningum Guðjóns Samú­els­son­ar, fyrr­ver­andi húsa­meist­ara rík­is­ins.

Karl gerir málið að umtalsefni í pistli á Eyjunni:

„Sumir héldu að það væri aprílgabb þegar spurðist að hugmyndir væru uppi um að byggja nýtt hús fyrir Aþingi,  eftir teikningu Guðjóns Samúelssonar. Að hér væri komið enn eitt dæmið um það bruðl sem einkenndi þingið og stjórnkerfið í heild sinni.

Nú er það svo að Alþingi borgar hundruð milljóna króna á ári hverju í leigu á húsnæði á dýrasta stað í bænum, miðborginni. Fulltrúar þingsins hafa farið yfir þetta með okkur sem sitjum í fjárlaganefnd þingsins. Stór hluti þessa húsnæðis er vegna skrifstofa alþingismanna. Það má því færa nokkur rök fyrir því að þeir fjármunir, sem færu í nýtt húsnæði, myndu skila sér fljótt til baka. Þetta gleymist í umræðunni,“ segir hann.

Hann bætir við að mikið af þeim samningum sem séu í gildi séu hins vegar langtímaleigusamningar. Það sé ekki sjálfgefið að hægt sé að rifta þeim með skömmum fyrirvara.

„Svo má auðvitað spyrja hvort  þörf sé á öllum þessum skrifstofum. Sjálfur afsalaði ég mér minni í upphafi árs. Aðrir þingmenn, í flestum eða öðrum flokkum, telja sig hafa mikla þörf fyrir slíka aðstöðu.“

Frétt mbl.is: Reist verði viðbygging við Alþingi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert