Nemendafélag FB styrkir neyðarsöfnun

Frá afhendingu styrksins í morgun.
Frá afhendingu styrksins í morgun.

Nemendafélag Fjölbrautaskólans í Breiðholti gaf í morgun 150 þúsund krónur til styrktar Neyðarsöfnun Félags Nepala á Íslandi. Kushu Gurung stjórnarmaður í félaginu og nepalskir nemendur FB tóku á móti styrknum frá stjórn NFB.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjölbrautaskólanum.

„Við afhendingu styrksins kom fram í ræðu formanns NFB, Péturs Magnússonar, að í skólanum eru fjölmargir nemendur af erlendu bergi brotnir og að stór hópur nepalskra nemenda stundi nám við skólann. Nemendafélagið vill með styrknum sýna vilja sinn í verki og leggja sitt að mörkum eftir náttúruhamfarirnar í Nepal. Þess má geta að Kushu Gurung útskrifaðist sem stúdent frá FB í fyrravor,“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur fram að reikningsnúmer söfnunarinnar sé 0133-15-380330 og kennitala 511012-0820.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert