Búið að opna göngin á ný

Hvalfjarðargöng
Hvalfjarðargöng mbl.is/Golli

Malbikun Hvalfjarðarganganna hefur gengið betur en áætlað var og því voru göngin opnuð fyrir umferð klukkan fjögur í nótt og ekki þarf að koma fyrir umferð um þau aðra nótt.

„Auglýst var og kynnt að lokað yrði þá vegna framkvæmda í tvær nætur í framhaldi af malbikun um liðna helgi og viðhalds. Verkum miðaði hins vegar mun hraðar en ráð var fyrir gert.

Upp úr klukkan fjögur í morgun var opnað á ný fyrir umferð og vorverkum í Hvalfjarðargöngum er þar með lokið í þetta sinn,“ segir í tilkynningu frá Speli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert