Fimm í haldi lögreglu

Fimm manns eru í haldi lögreglu en einn þeirra er talinn hafa bakkað á karlmann við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar, þar sem hann var á leið yfir gatnamótin, skömmu eftir hádegi í dag. Hann er ekki talinn alvarlega slasaður.

Ökumaður bílsins fór af vettvangi án þess að nema staðar. Lögreglu bárust upplýsingar um skráningarnúmer bílsins og fundu lögreglumenn hann þar sem honum var lagt fyrir utan hús. Þar voru fimm einstaklingar saman komnir. Þeir voru allir undir áhrifum áfengis og var ekki ljóst hver þeirra hefði ekið bílnum.

Þeir voru því allir fimm vistaðir í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.

Frétt mbl.is: Óska eftir vitnum að umferðarslysi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert