Harður árekstur við Lækjarbotna

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Harður árekstur varð rétt austan við gatnamótin að Lækjarbotnum á þjóðveginum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi varð áreksturinn með þeim hætti að tveir bílar skullu saman. Ökumaður annars bílsins var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi en hinn á Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi. Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan þeirra. 

Bílarnir skullu saman eftir að þriðji bíllinn neyddist til að nauðhemla þegar lamb hljóp yfir veginn. Í kjölfarið lenti bíllinn á eftir honum hinum megin á veginum og framan á öðrum bíl. Áreksturinn varð um klukkan 14:30 í dag. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert