Samið við starfsfólk í landbúnaði

mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Starfsgreinasambandið hefur gengið frá nýjum kjarasamningi við Bændasamtök Íslands vegna starfsfólks í landbúnaði. Samningurinn tekur sömu hækkunum og samið var um í almennum kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins auk þess sem farið var yfir gildissvið samningsins og er nú talað um að hann taki til starfsfólks í landbúnaði en ekki einungis á lögbýlum.

Þá voru upphæðir sem draga má frá launum vegna fæðis og húsnæðis hækkaðar lítillega. Samningurinn gildir frá 1. maí 2015 og út árið 2018 eins og aðrir samningar á almennum vinnumarkaði, segir í frétt á vef Starfsgreinasambandsins.

Nýr kjarasamningur Starfsgreinasambands Íslands og Bændasamtaka Íslands

Kauptaxtar SGS fyrir starfsfólk í landbúnaði

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert