Annar mannanna tveggja sem handteknir voru á Akureyri í gær eftir að þeir gripu til hnífa á heimili annars þeirra er enn á sjúkrahúsi. Hinn gisti í fangaklefa og verða þeir yfirheyrðir í dag.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu þurfti maðurinn að gangast undir aðgerð í gær, en eins og komið hefur fram sködduðust þó ekki mikilvæg líffæri. Mennirnir hlutu báðir djúpa skurði.
Mennirnir eru góðkunningjar lögreglu og búa í sama húsi, hvor í sinni íbúðinni. Tildrög árásarinnar eru óljós og er málið í rannsókn.
Frétt mbl.is: Börðust með hnífum á Akureyri