Tveir vélhjólamenn voru heldur fátækari þegar þeir yfirgáfu landið í morgun með Norrænu. Því þeim var gert að greiða sekt fyrir utanvegaakstur í Vatnajökulsþjóðgarði.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Austurlandi má þakka þetta góðri samvinnu landvarða í þjóðgarðinum og lögreglu.
Í tilvikum sem þessum afla landverðir upplýsinga um hverjir hafi verið þar á ferð og sýna lögreglu vegsummerki en lögreglan reyndir að hafa upp á viðkomandi. Það tókst í þessu tilviki, að sögn lögreglu og greiddu vélhjólamennirnir sekt fyrir athæfið áður en þeir fóru af landi brott í morgun.