Bann Rússa þungt högg

Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra. mbl.is/Golli

Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og sendiherra Rússlands á Íslandi, Anton V. Vasiliev ræddust við á óformlegum fundi í dag. Farið var yfir stöðuna sem uppi er í samskiptum ríkjanna, vegna ákvörðunar Rússa um að setja innflutningsbann á íslenska matvöru.

Ráðherra benti á það að bann Rússa væri mun þyngra högg fyrir íslenskt efnahagslíf, en annarra þjóða. Helgast það einkum af því að mikið af sjávarafurðum hefur verið flutt út til Rússlands á undanförnum árum, að því er segir í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu.

Sendiherrann sagði að ákvörðunin frá því í morgun, beindist ekki sérstaklega gegn Íslandi, heldur væru Rússar að svara í sömu mynt fyrir þær aðgerðir sem beitt hefði verið gegn þeim. Aðgerðir sem Rússar telji ólöglegar. Sendiherrann sagðist ekki hafa upplýsingar um hversu víðtækt innflutningsbannið væri, en það væri tímabundið og nauðsynlegt að vinna að sameiginlegri lausn, að því er fram kemur í tilkynningunni.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert