Auglýsa eftir vitnum að atviki á Þjóðhátið

Á Þjóðhátíð í Eyjum.
Á Þjóðhátíð í Eyjum. mbl.is/Guðmundur

Lögreglan í Vestmannaeyjum auglýsir eftir vitnum að atviki sem átti sér stað á Þjóðhátíðinni um verslunarmannahelgina þegar maður féll í jörðina við auglýsingaskilti sem var upp við hvítu tjöld heimamanna, gegnt brúnni yfir tjörnina.  

Talið er að atvikið hafi átt sér stað um kl. 02:00 aðfaranótt 1. ágúst. Maðurinn var, síðar um daginn, fluttur á sjúkrahús í Reykjavík með sjúkraflugi vegna gruns um að hann hafi fengið heilablæðingu.

Þeir sem telja sig hafa einhverjar upplýsingar varðandi atvikið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í síma 444 2090 eða í gegnum facebook-síðu lögreglunnar í Vestmannaeyjum.

Frétt mbl.is: Fékk heilablæðingu á þjóðhátið

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert