Skilaði peningum sem hann stal

Landmannalaugar.
Landmannalaugar. Brynjar Gauti

Ungur karlmaður kom á lögreglustöðina á Hvolsvelli í gær og skilaði peningum sem hann sagðist hafa stolið úr baðhúsi í Landmannalaugum. Var hann yfirheyrður vegna brotsins og verður málið sent ákærusviði að lokinni rannsókn til frekari meðferðar. Lögreglunni á Suðurlandi bárust tíu kærur vegna þjófnaðar í liðinni viku en flest þeirra eru upplýst. 

Frétt mbl.is: Brotist inn í Landmannalaugum

Átta þjófnaðarmálanna áttu sér stað á Selfossi. Karlmaður var handtekinn grunaður um verðmætaþjófnað úr ólæstum bílum. Sá hafði undanfarið komið oft við sögu lögreglu. Vegna meintra síbrota hans var gerð krafa um að hann yrði úrskurðaður í síbrotagæslu. Það gekk eftir og Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði manninn í gæslu í fjórar vikur.

Tveir útlendir karlmenn voru handteknir fyrir búðahnupl á Selfossi. Þeir voru yfirheyrðir og látnir lausir að því loknu. Erlendur ferðamaður var kærður fyrir að aka utan vegar við Gýgukvísl. Lögreglumenn á Kirkjubæjarklaustri höfðu afskipti af ökumanninum sem viðurkenndi brotið en bar fyrir sig að hann teldi heimilt að aka á auðum sandinum.

Lögreglu bárust tólf tilkynningar um slys á fólki. Þar á meðal voru þrjú hestaslys þar sem knapar féllu af hestum sínum. Önnur slys voru flest vegna þess að fólk hrasaði á göngu á ferðamannastöðum. Í nokkrum tilvikanna hlaust af beinbrot.

Húsleit var gerð hjá karlmanni á Selfossi vegna gruns um að hann hefði fíkniefni í vörslum sínum. Hjá honum fundust kannabisefni og duft sem talið er vera amfetamín. Maðurinn viðurkenndi að eiga efnin.

Tveir ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur í vikunni og 78 fyrir hraðakstur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert